Fréttirolweusardagur_seydisfjordur
olweusardagur_seydisfjordur

Frá Olweusardeginum á Seyðisfirði

Skólar sem fylgja Olweusaráætluninni gegn einelti brjóta gjarnan upp hefðbundinn skóladag og efna til sameiginlegrar hátíðar með bæjarbúum. Á Seyðisfirði var stofnunum og fyrirtækjum í bænum færðir táknrænir afleggjarar af hamingjutré sem börnin bjuggu til í skólanum. Var bæjarbúum boðið að fylgjast með. Þema dagsins var einelti og baráttan gegn því. Settar voru upp mismunandi smiðjur sem nemendur skráðu sig í og unnu með ýmis verkefni. Í boði voru: listasmiðja, viðtals-og bæklingasmiðja, tónlistarsmiðja, myndbandssmiðja og skiltasmiðja. Afraksturinn má sjá á myndum eins og þeirri sem hér er birt.