Samstarf er milli Olweusaráætlunarinnar á Íslandi og höfuðstöðvanna í Björgvinjum í Noregi. Olweus International með aðsetur í Björgvinjum er með yfirumsjón verkefnisins utan Noregs.

Í upphafi (2002) var Olweusaráætlunin á Íslandi undir handarjaðri Menntamálaráðuneytisins. Samstarf var með KÍ, Kennaraháskólanum, Heimili og skóla og Skólastjórafélagi Íslands.

Olweusaráætlunin er frá 2008 rekin með samningi við Mennta- og menningarmálaráðuneytið. Framkvæmdastjóri Olweusaráætlunarinnar á Íslandi er Þorlákur Helgi Helgason – og hefur svo verið frá upphafi innleiðingar verkefnisins á Íslandi.

Auk ofangreindra samstarfsaðila eru samskipti m.a. við háskólastofnanir og ráðgjöf til ýmissa aðila. Samstarf er við Prentmet ehf.