Olweusaráætlunin hvílir á fremur fáum lykilmeginreglum sem fengist hafa staðfestar í vísindalegum rannsóknum á þróun og breytingum þessa atferlisvanda, einkum árásarhneigðu atferli. Það er því mikilvægt að reyna að koma á „endurskipulagningu þess félagslega umhverfis sem er“ og að skapa skólaumhverfi (og helst líka umhverfi heima fyrir) sem einkennist af:
• hlýlegum og jákvæðum áhuga og alúð hinna fullorðnu
• ákveðnum römmum vegna óviðunandi atferlis
• stefnufastri beitingu neikvæðra afleiðinga (refsinga) sem hvorki eru líkamlegar né óvinveittar, brjóti nemandi gegn þeim reglum sem ákveðnar hafa verið
• fullorðnum í skóla (og á heimili) sem virka sem yfirboðarar við vissar aðstæður.
Þessar meginreglur hafa svo verið „þýddar“ yfir í ýmsar aðgerðir í skólum, á heimilum og hvað hvern og einn varðar (sjá 1. töflu). Helstu markmið aðgerðaáætlunarinnar eru þau að breyta „skipulagi tækifæra og umbunar“ fyrir einelti þannig að mjög dragi úr möguleikum á eineltisatferli og umbun fyrir það.
<strong>Upplýsingar um Olweusarverkefnið gegn einelti og andfélagslegri hegðun</strong>
Efnið byggir á kröfum til þátttakenda og á útfærslu á Íslandi fram að þessu.
Gert er ráð fyrir að innleiðing Olweusaráætluninnar nái til tveggja skólaára. Allir starfsmenn eru þátttakendur í umræðuhópum sem hittast reglulega og tileinka sér þannig námsefni og aðferðir. Jafnframt er viðamikil könnun um einelti lögð fyrir tvisvar sinnum á tímabilinu; næst í nóvember 2018 og á sama tíma að ári (2019).