Verkefnastjórar. Þegar skóli sækir um þátttöku í Olweuaráætluninni er verkefnastjóri tilnefndur. Hann/hún er faglegur leiðbeinandi í skólanum. Verkefnastjóri er innritaður á námskeið verkefnastjóra sem tekur tvö ár í átta staðlotum, samtals 11 daga. Verkefnastjóri hefur umsjón með uppfræðslu starfsmanna og er skólastjórnendum til halds og trausts við innleiðingu áætlunarinnar. Verkefnastjóri getur verið starfsmaður utan skóla en það er algengara að sé innanhússmanneskja. Verkefnastjórarnir eru með réttu lykilfólk í Olweusaráætluninni.
Skólar sem óska eftir að taka þátt með okkur í Olweusaráætluninni eiga að hafa samband við framkvæmdastjóra á netfangI: torlakur@hi.is.