Í árlegri eineltiskönnun okkar í “Olweusarskólum” á Íslandi kemur m.a. í ljós að stúlkum á unglingastigi (í 8.-10. bekk) líkar verr í skólanum. Í eineltisrannsókn okkar 2011 var hlutfallið 1,9% sem sagði að þeim liði illa eða mjög illa í skólanum en í nóvemberkönnun 2015 eru 5% eða tuttugasta hver stúlka sem líkar illa eða mjög illa í skólanum. Þessu tengt segjast 10,9% stúlkna í 8.-10. bekk að þær óttist að verða lagðar í einelti af samnemendum. 6,5% svöruðu á sama hátt í eineltiskönnuninni 2011. Kannanir hafa gefið til kynna að kvíði meðal stúlkn a hafi aukist.
Ekki er að sjá að sama vera uppi á teningnum hjá piltunum. Þar er ekki um samfellda þróun að ræða til verri vegar eins og hjá stúlkunum.
ÞHH
“Hvernig líkar þér að vera í skólanum?”
(Byggt er á svörum nemenda allra þeirra skóla sem leggja könnunina fyrir hverju sinni)
8.-10. bekk | Landsmeðaltal | |
Líkar illa eða mjög illa í skóla | ||
Stelpur | Strákar | |
h2015 | 5,0% | 4% |
h2014 | 4,0% | 3,2% |
h2013 | 3,6% | 3% |
h2012 | 2,7% | 3,9% |
h2011 | 1,9% | 4,0% |