OLWEUSARVERKEFNIÐ GEGN EINELTI
MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2010

Forsíða
Fréttir
Greinar
Tenglar
Eineltisáætlun
Fyrirspurnir
Skólar
Til foreldra
Starfsfólk
Erlent efni
Kannanir
Fundargerðir

Einelti á stjórnarheimilinu. Mest kvartað undan bölvi og ragni - eins og á Íslandi

Athygli vekur að mest er fundið að ótilhlíðanlegu orðbragði. Það sama á við meðal nemenda í grunnskólum á Íslandi. Þeir segja eineltið helst birtast ís gríni, uppnefni og stríðni á óþægilegan og meiðandi hátt. 

 

Úr frétt á visir.is í morgun:

Í nýútkominni bók er því haldið fram að forsætisráðherrann komi illa fram við starfsfólk sitt, hann bölvi og ragni í tíma og ótíma þyki honum hlutirnir ekki ganga sem skildi. Þá segir í bókinni að hann eigi það til að grípa í jakkaboðunga undirmanna sinna og öskra á þá.

Þessum ásökunum hefur alfarið verið hafnað hingað til, meðal annars af Mandelson lávarði viðskiptaráðherra en nú hefur forstöðukona hjálparlínu sem berst gegn einelti á vinnustað stigið fram og fullyrt að nokkrir starfsmenn forsætisráðherrans hafi hringt í hjálparlínuna og sagt farir sínar ekki sléttar af samskiptum sínum við forsætisráðherrann.

Forstöðukonan segir að fjórir starfsmenn Downing strætis hafi hringt til samtakanna, sá síðasti fyrir nokkrum mánuðum. Hún segir að allir segir þeir sömu söguna, að vinnan í forsætisráðuneytinu taki all verulega á taugarnar, ekki síst vegna framkomu forsætisráðherrans.


http://visir.is/article/20100222/FRETTIR02/382403952

Olweusarverkefnið sameinað í nýjum grunnskóla í Fjallabyggð.
Báðir forverar nýs grunnskóla, Grunnskóli Ólafsfjarðar og Grunnskóli Siglufjarðar, hafa unnið gegn einelti í anda Olweusar síðastliðin ár. Nýr grunnskóli hefur það að markmiði að starfa að einurð gegn einelti - í anda Olweusar, segir á skólasíðu.  >>
Þunglyndi og kvíði á fullorðins árum: Helmingurinn glímdi við einelti í æsku.
Önnur hver fullorðin manneskja sem þjáist af kvíða og þunglyndi og leitar sér hjálpar, hefur verið lögð í einelti sem barn. Gerendur og þolendur eru í hættu skv. norskum rannsóknum.  >>
Ekkert barn upplifi vinalausa æsku
Vinaverkefnið í Skagafirði hefur vakið athygli. Markmiðið er að auka virðingu í samskiptum, efla vináttu og velferð barna og unglinga. Jafnt í leik- og grunnskóla, í framhaldsskólum og í frístundastarfi. Foreldrarnir eru líka samstarfsaðilar.  >>
Семьи-Друзья в школе Vesturbæjar
Семьи-Друзья в школе Vesturbæjar Семьи дурзья это дружеские отношения двух и более семей, как например исландских семей и смешанных или иностранных, которые взаимодействуют между собой и содают так называемую сеть внутри школьного коллектива (   >>
Olweusaráætlunin eina sem hefur áhrif
Sænsk yfirvöld telja Olweusaráætlunina þá einu sem getur sýnt fram á að dragi úr einelti. http://www.skolutveckling.se/digitalAssets/156047_granskning__utvarderingar__program_mobbning.pdf   >>
Viðhorf gerenda til ofbeldis er jákvæðara en nemenda almennt.
Fastir bekkjarfundir - ekkert einelti
Ef bekkjarfundir eru fastir í stundatöflu vikulega er ekkert einelti.   >>