|
|
Ýma tröllastelpa er upplagt efni gegn einelti
|
|
|
Mannabörn hafa gaman af tröllastelpu.
|
Brekkubæjarskóli hefur nýtt sér efnið í kennslu yngstu barnanna.
Eins og undanfarin ár hefur Prentmet fært nemendum í 1. bekk bókina um Ýmu tröllastelpu að gjöf. Bókin um Ýmu er eftir Ingibjörgu Steinunni Ingjaldsdóttur (dóttur Ingu Jónu sérkennara við Brekkubæjarskóla). Námsefni bókarinnar tekur á samskiptum, vináttu, virðingu, líðan, trausti, ólíkri menningu og einelti. Mikið er rætt um að það hve ólík við séum og að allir skipti jafn miklu máli. Við erum frábær eins og við erum. Allt þetta samræmist vel lífsleiknistefnu okkar Góður og fróður og dygðunum sem eru rauði þráðurinn í því starfi.
(af heimasíðu)
|
|
Olweusarverkefnið sameinað í nýjum grunnskóla í Fjallabyggð.
Báðir forverar nýs grunnskóla, Grunnskóli Ólafsfjarðar og Grunnskóli Siglufjarðar, hafa unnið gegn einelti í anda Olweusar síðastliðin ár. Nýr grunnskóli hefur það að markmiði að starfa að einurð gegn einelti - í anda Olweusar, segir á skólasíðu. >> |
Þunglyndi og kvíði á fullorðins árum: Helmingurinn glímdi við einelti í æsku.
Önnur hver fullorðin manneskja sem þjáist af kvíða og þunglyndi og leitar sér hjálpar, hefur verið lögð í einelti sem barn. Gerendur og þolendur eru í hættu skv. norskum rannsóknum. >>
|
Ekkert barn upplifi vinalausa æsku
Vinaverkefnið í Skagafirði hefur vakið athygli. Markmiðið er að auka virðingu í samskiptum, efla vináttu og velferð barna og unglinga. Jafnt í leik- og grunnskóla, í framhaldsskólum og í frístundastarfi. Foreldrarnir eru líka samstarfsaðilar. >>
|
Семьи-Друзья в школе Vesturbæjar
Семьи-Друзья в школе Vesturbæjar
Семьи дурзья это дружеские отношения двух и более семей, как например исландских семей и смешанных или иностранных, которые взаимодействуют между собой и содают так называемую сеть внутри школьного коллектива
( >>
|
|