OLWEUSARVERKEFNIÐ GEGN EINELTI
MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2010

Forsíða
Fréttir
Greinar
Tenglar
Eineltisáætlun
Fyrirspurnir
Skólar
Til foreldra
Starfsfólk
Erlent efni
Kannanir
Fundargerðir

Allir leikskólar Ísafjarðarbæjar ætla að taka upp eineltisáætlun Olweusar í haust

Allir leikskólar ætla innleiða Olweusaráætlunina
Allir leikskólar Ísafjarðarbæjar ætla að taka upp eineltisáætlun Olweusar fyrir starfsárið 2010-2011. Áætlunin hefur verið notuð í grunnskólum Ísafjarðarbæjar í nokkur ár og á leikskólanum Eyrarskjóli á Ísafirði síðan 2008, en hann var fyrsti leikskólinn á landinu til að innleiða verkefnið. Eineltisáætlunin á að verða hluti af hefðbundnu starfi leikskólans. Áætlunin byggir á áralöngum viðamiklum rannsóknum á einelti í Svíþjóð og Noregi. Á bak við hana stendur hópur sérfræðinga undir stjórn Dan Olweus sálfræðings og prófessors við háskólann í Bergen.

Áætlunin hefur verið prófuð við marga skóla, m.a. í Bandaríkjunum þar sem hún var valin ein af tíu bestu úr hópi 400 slíkra áætlana. Í landsátaki gegn afbrotum unglinga í Noregi árið 2005 var áætlunin valin virkasta forvörnin í skólum landsins og þeir studdir í að innleiða hana. Frá þessu var sagt á vef leikskólans Grænagarðs á Flateyri.

Olweusarverkefnið sameinað í nýjum grunnskóla í Fjallabyggð.
Báðir forverar nýs grunnskóla, Grunnskóli Ólafsfjarðar og Grunnskóli Siglufjarðar, hafa unnið gegn einelti í anda Olweusar síðastliðin ár. Nýr grunnskóli hefur það að markmiði að starfa að einurð gegn einelti - í anda Olweusar, segir á skólasíðu.  >>
Þunglyndi og kvíði á fullorðins árum: Helmingurinn glímdi við einelti í æsku.
Önnur hver fullorðin manneskja sem þjáist af kvíða og þunglyndi og leitar sér hjálpar, hefur verið lögð í einelti sem barn. Gerendur og þolendur eru í hættu skv. norskum rannsóknum.  >>
Ekkert barn upplifi vinalausa æsku
Vinaverkefnið í Skagafirði hefur vakið athygli. Markmiðið er að auka virðingu í samskiptum, efla vináttu og velferð barna og unglinga. Jafnt í leik- og grunnskóla, í framhaldsskólum og í frístundastarfi. Foreldrarnir eru líka samstarfsaðilar.  >>
Семьи-Друзья в школе Vesturbæjar
Семьи-Друзья в школе Vesturbæjar Семьи дурзья это дружеские отношения двух и более семей, как например исландских семей и смешанных или иностранных, которые взаимодействуют между собой и содают так называемую сеть внутри школьного коллектива (   >>
Olweusaráætlunin eina sem hefur áhrif
Sænsk yfirvöld telja Olweusaráætlunina þá einu sem getur sýnt fram á að dragi úr einelti. http://www.skolutveckling.se/digitalAssets/156047_granskning__utvarderingar__program_mobbning.pdf   >>
Einelti: Endurtekið illgirnislegt atferli eins eða fleiri sem beinist gegn ákveðnum einstaklingi sem á erfitt með að verja sig.
Fastir bekkjarfundir - ekkert einelti
Ef bekkjarfundir eru fastir í stundatöflu vikulega er ekkert einelti.   >>