OLWEUSARVERKEFNIÐ GEGN EINELTI
MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2010

Forsíða
Fréttir
Greinar
Tenglar
Eineltisáætlun
Fyrirspurnir
Skólar
Til foreldra
Starfsfólk
Erlent efni
Kannanir
Fundargerðir

Valsárskóli nýr skóli í Olweusarverkefnið. Fjölmenni á kynningarfundi foreldra og starfsmanna

Nemendur í Valsárskóla eru 54 og álíka margir voru á foreldra- og starfsmannafundi í skólanum í gærkvöldi. Fundurinn markaði upphaf þátttöku Valsárskóla í Olweusarverkefninu gegn einelti. Til mikils er að vinna í sveitarfélagi þar sem skólinn er þungamiðja samfélagsins. Enda er vel búið að honum. Þorlákur H. Helgason, framkvæmdastjóri Olweusaráætlunarinnar á Íslandi, kynnti megináherslur eineltisáætlunarinnar. Fjölmargar fyrirspurnir komu fram og stóð fundurinn yfir á þriðju klukkustund. Einar Már skólastjóri hvatti fólk til dáða og sagði að verkefnið væri mikils virði fyrir skólann og samfélagið allt.
Olweusarverkefnið sameinað í nýjum grunnskóla í Fjallabyggð.
Báðir forverar nýs grunnskóla, Grunnskóli Ólafsfjarðar og Grunnskóli Siglufjarðar, hafa unnið gegn einelti í anda Olweusar síðastliðin ár. Nýr grunnskóli hefur það að markmiði að starfa að einurð gegn einelti - í anda Olweusar, segir á skólasíðu.  >>
Þunglyndi og kvíði á fullorðins árum: Helmingurinn glímdi við einelti í æsku.
Önnur hver fullorðin manneskja sem þjáist af kvíða og þunglyndi og leitar sér hjálpar, hefur verið lögð í einelti sem barn. Gerendur og þolendur eru í hættu skv. norskum rannsóknum.  >>
Ekkert barn upplifi vinalausa æsku
Vinaverkefnið í Skagafirði hefur vakið athygli. Markmiðið er að auka virðingu í samskiptum, efla vináttu og velferð barna og unglinga. Jafnt í leik- og grunnskóla, í framhaldsskólum og í frístundastarfi. Foreldrarnir eru líka samstarfsaðilar.  >>
Семьи-Друзья в школе Vesturbæjar
Семьи-Друзья в школе Vesturbæjar Семьи дурзья это дружеские отношения двух и более семей, как например исландских семей и смешанных или иностранных, которые взаимодействуют между собой и содают так называемую сеть внутри школьного коллектива (   >>
Olweusaráætlunin eina sem hefur áhrif
Sænsk yfirvöld telja Olweusaráætlunina þá einu sem getur sýnt fram á að dragi úr einelti. http://www.skolutveckling.se/digitalAssets/156047_granskning__utvarderingar__program_mobbning.pdf   >>
Bekkurinn/hópurinn: Koma á bekkjareglum/skólareglum gegn einelti sem er fylgt eftir á föstum (skóladagatal) bekkjarfundum
Fastir bekkjarfundir - ekkert einelti
Ef bekkjarfundir eru fastir í stundatöflu vikulega er ekkert einelti.   >>