|
|
Einelti mælist 1,7% meðal nemenda í Fjölbrautaskóla Suðurlands
Einelti mælist um helmingi lægra í Fjölbrautaskóla Suðurlands en í samsvarandi framhaldskólum í Noregi. 25. nóvember sl. var víðtæk eineltiskönnun lögð fyrir nemendur á öllum stigum. Sjö af tíu tóku þátt en könnunin var lögð fyrir rafrænt. 1,7% sögðust hafa orðið fyrir einelti tvisvar í mánuði eða oftar. Þegar spurt var um hvers konar einelti ætti sér stað kvörtuðu flestir nemendur undan stríðni, rógi og lygum og hvers kyns útilokun úr félagahópnum. Mikil samkennd ríkir meðal nemenda og svör þeirra og lág tíðni eineltis benda til þess að skólaumhverfi sé ákjósanlegt. Niðurstöður voru kynntar í skólanum á fyrsta skóladegi nýs árs og markaði upphaf beinnar þátttöku í Olweusaráætluninni gegn einelti.
|
|
Olweusarverkefnið sameinað í nýjum grunnskóla í Fjallabyggð.
Báðir forverar nýs grunnskóla, Grunnskóli Ólafsfjarðar og Grunnskóli Siglufjarðar, hafa unnið gegn einelti í anda Olweusar síðastliðin ár. Nýr grunnskóli hefur það að markmiði að starfa að einurð gegn einelti - í anda Olweusar, segir á skólasíðu. >> |
Þunglyndi og kvíði á fullorðins árum: Helmingurinn glímdi við einelti í æsku.
Önnur hver fullorðin manneskja sem þjáist af kvíða og þunglyndi og leitar sér hjálpar, hefur verið lögð í einelti sem barn. Gerendur og þolendur eru í hættu skv. norskum rannsóknum. >>
|
Ekkert barn upplifi vinalausa æsku
Vinaverkefnið í Skagafirði hefur vakið athygli. Markmiðið er að auka virðingu í samskiptum, efla vináttu og velferð barna og unglinga. Jafnt í leik- og grunnskóla, í framhaldsskólum og í frístundastarfi. Foreldrarnir eru líka samstarfsaðilar. >>
|
Семьи-Друзья в школе Vesturbæjar
Семьи-Друзья в школе Vesturbæjar
Семьи дурзья это дружеские отношения двух и более семей, как например исландских семей и смешанных или иностранных, которые взаимодействуют между собой и содают так называемую сеть внутри школьного коллектива
( >>
|
|